Cap Cedrat Shower Gel 250ml Hreinsar og frískar upp á húðina og gefur ferskan ilm. Inniheldur cedrat ilmkjarnaolíu. L'Occitane - 2.320,00kr.
Svo miklu meira en frískandi sturtugel. Leyfðu ilminum að fara með þig í ferðalag... Sturtugelið hreinsar bæði húðina og hárið. Gelið verður að þykkri froðu sem hressir upp á húðina og gefur brakandi ferskan og vatnskenndan ilm með ferskum sítrustónum í bland við heillandi viðarkennda krydd tóna.
Sturtugelið býr yfir léttum en frískandi karlmannlegum tónum Cap Cédrat. Sítrus og kryddaðir tónar blandast saman í ferskum cedrat ávöxtum og hressandi sjávarilm. Kryddaðir tónar blandast inn í djúpa viðartóna með cedar, amber og muskus. Ilmurinn er sniðinn í kringum cedrat ilmkjarnaolíu sem gefur ilminum náttúrulegan ferskleika.
Cap Cédrat segir sögu um þrá fyrir ævintýrum, um ferðalag mannsins sem elskar frelsið. Með augnaráðið á sjóndeildarhringnum, týnt í fjarlægðunum, heldur hann til sjávar. Vatnskenndir sítrus tónarnir fylgja honum í ferðalag sjálfskoðunar, ferðalags til að finna hans sanna sjálf. Cap Cédrat maðurinn hefur rætur í Arles. Sá bær liggur við árbakka Rhône sem eitt sinn var mikilvæg höfn í Suður-Frakklandi. Í Arles gekk sjómennskan niður frá föður til sonar. Stoltir og frjálsir, urðu sjómennirnir sterkur hluti af sögu Provence.
Handhæg blá flaskan er skreytt með munstri af rekavið.
Ferskur og karlmannlegur ilmur Cap Cédrat er líka að finna í rakstursvörum og líkamsvörum. Úðaðu Cap Cédrat Eau de Toilette á púls púnktana eftir sturtu.